8.10.2011 | 20:52
VMV. Vitleysingjar með völd
Hvað rugl er þetta!! Þykjast gefa 1,5 milljarðar af skattpeningum þjóðarinnar á meðan þeir skera niður hjá öllum háskólum, og öðrum menntastofnunum ásamt heilbrigðisþjónustu. Það er næstum því ábyrgðarlaust hjá fjölmiðlum að taka þá í svona bulli
![]() |
Vegleg gjöf á aldarafmæli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.10.2011 | 18:05
VMV. VITLEYSINGJAR MEÐ VÖLD
Af hverju í ósköpunum má ekki sjá hvað mun standa til boða? Við hvað eru þau hrædd?
![]() |
Vilja atkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
2.10.2011 | 13:29
VMV. Vitleysingar með völd
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hvernig heldur þú Jón Gnarr að kjósendum í Reykjavík líði. Það eru ansi margir sem spyrja sig; "Hvern fjandann var ég að hugsa þegar ég kaus Jón Gnarr. Við verðum að koma honum burt"
![]() |
Jón Gnarr: Evran ekki svöl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
14.4.2011 | 11:41
Hvað ef! Jón Gnarr?
Ísland er fámennt og vopnalaut land. Hvað er hópur íslendinga tæki nú völdin með vopnum. Á þá engin að koma okkur til hjálpar, þar sem þetta væri innanríkismál Íslending og hjálpin yrði að koma frá her einhvers lands. Er Jón Gnarr nokkuð hræsnari.
Það eru allir heilvita menn á mótir stríði. Vandinn er að það eru ekki allir heilvita
![]() |
Á móti hernaði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
4.4.2011 | 17:52
Afhverju eigum við að borga Icesave?
Ef útlendingur kemur til Íslands og fremur glæp, þá er hann ákærður og dæmdur. Íslenska ríkið sendir ekki reikning fyrir kostnaði til þess ríkis sem afbrotamaðurinn kemur frá. (Þótt hann kæmi frá Hollandi eða Bretlandi) Það er nokkuð ljóst hverjir glæpamennirnir voru í tilfelli Icesave. Það á að dæma þá og láta þá borga, ekki Íslensku þjóðina.
Því er mikið haldið fram að við verðum að borga til að brjóta ekki jafnréttisákvæði EES samningsins. Þegar innstæður á bankareikningum hér á Íslandi voru tryggðar af Íslenska ríkinu, þá var ekki farið í manngreiningar. Það fengu allir sínar innstæður, hvaðan sem einstaklingarnir komu (líka frá Hollandi og Bretlandi). Það sama var með Icesave reikningana. Íslenska ríkið tryggði ekki neinar innstæður á þeim reikningum og þar með talið Íslendingum.
Peningar ráða allt of miklu í heiminum og það gengur ekki að láta græðgi fárra vera borna af fjöldanum. Bankar greiddu ofurlaun, ofur bónusa og ofur arð. Þeir réðu ríkjum og stjórnuðu stjórnmálamönnum og síðan þegar græðgin var komin heilan hring, þá áttu skattgreiðendur að borga. Ef banki eins og gamli Landsbankinn getur opnað reikninga eins og Icesave með hærri innlánsvöxtum en nokkur annar banki í heiminum bara vegna þess að það er ríkistrygging á innstæðum þá er eitthvað verulega rangt í gangi. Hvatinn t.d. til að fylgjast með rekstri bankans verður mögulega mjög lítill þegar eftirlitsaðilar vita að einhver annar þarf að borga ef illa fer.
Í framtíðinni þarf bankakerfið að breytast. Bankar og önnur fjármögnunarfyrirtæki vinna samkvæmt mati sem er gert á einstaklingum, fyrirtækjum og öðrum lánastofnunum. Lánshæfi er metið og upphæð og vextir ákveðast miðað við þetta lánshæfismat. Þetta er kallað áhættustýring og það er vegna þess að útlánastarfsemi er áhættustarfsemi. Það að fá laun sín greidd inn á bankareikning á ekki og er ekki áhættustarfsemi. Engin banki á að fá eða halda starfsleyfi ef þeir geti ekki staðið undir innstæðum fari bankinn í gjaldþrot. Það á ekki að vera nein lágmarksupphæð í innstæðum sem eru tryggðar, þeir eiga að geta endurgeitt allt það fé sem er sett í geymslu hjá þeim, sama hver á það fé, hvort heldur það séu einstaklingar, fyrirtæki eða aðrar lánastofnanir.
Það mun ekki breyta allri bankastarfsemi í heiminum þótt við Íslendingar neitum að bera ábyrgð á gerðum örfárra vitleysingja, en það gæti leitt til umtals, sem gæti leitt til breytinga. Það á engin að fá ofurlaun, ofurbónus eða ofurarð á kostnað skattgreiðenda.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.3.2011 | 02:30
Steingrímur með hárkollu
Lilja virðist ekki átta sig á því að Steingrímur verður alltaf Steingrímur, þú hún setji á hann hárkollu og klæði hann í ný jakkaföt. Krónan verður alltaf léleg, sama hvað þú kallar hana
![]() |
Lilja á fundi hjá Hreyfingunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.3.2011 | 20:57
Lilja kallar erindi sitt „Ný íslensk króna
Lilja! Vertu alveg klár á því að Steingrímur verður áfram Steingrímu, þó þú setji á hann hárkollu og klæði hann í ný jakkaföt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2011 | 07:51
Kraftar kjarnorkunnar eru of miklir
Kraftar kjarnorkunnar eru of miklir. Við ráðum einfaldlega yfir þessari orku. Slysin í Penselvaníu, Chernobil og nú þetta, sýna öll að það er ekki til neitt kjarnorkuver sem er algjörlega öruggt. Kjarnorkan getur ekki heldur verið einkamál þjóða, þar sem geislavirknin, virðir ekki nein landamæri. Það er kannski auðvelt fyrir mig hér á Íslandi þar sem næg orka er, en það breytir ekki þeirri staðreynd að kjarnorkan er óörugg og má ekki breiðast meira út.......
![]() |
Önnur sprenging í Fukushima |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)